Gamli Jörfi

Stefán Sigfússon, áður prestur á Hofi í Álftafirði, byggði húsið árið 1897 og er þar með elsta standandi íbúðarhús á Borgarfirði eystra. Húsið er járnklætt timburhús. Síðar steypt utan á veggi.
Ólafur Ágústsson og Helga Sesselja Jóhannsdóttir keyptu Jörfa af Hallgrími Björnssyni árið 1946 og var húsið þá að mestu óbreytt frá byggingu þess. Nafni hússins var breytt íGamla-Jörfa eftir að Hallgrímur byggði hús á næstu lóð og gaf því einnig nafnið Jörfi.
Sunnan undir húsinu var lítill skúr og inn af honum lítill gangur. Úr þessum gangi var gengið beint inn í stofu. Herbergi var þar til hliðar á vinstri hönd og gengið í það úr stofunni. Síðan var úr sama gangi gengið á vinstri hönd í eldhús, en á hægri hönd í það sem nú er búr. Það var upphaflega annað eldhús vegna þess að í þessu litla húsi bjuggu á sínum tíma tvær fjölskyldur. Úr búrinu er stigi upp á loft og þar uppi var eitt herbergi og framloft, sem kallað var, en þar var geymsla. Vestan við húsið er sambyggt fjós og þvottahús. Í fjósinu voru básar fyrir tvær kýr, en í þvottahúsi var stór, kolakyntur þvottapottur. Þessi pottur gegndi ýmsum hlutverkum og á hverju hausti var til dæmis soðið í honum slátur. Nú er þetta geymsla og kýr og hænur löngu horfnar.

Ólafur og Helga breyttu ýmsu í Gamla-Jörfa. Þrátt fyrir allar breytingar má þó finna þar ýmsa upprunalega hluti, eins og hurðir, stigann upp á loft, timburgólfin á loftinu og fleira. Ólafur steypti utan á alla útveggi þegar bárujárnið varð ónýtt. Þá var fyllt upp í kjallara undir húsinu, gólfin voru steypt og á þau lagður dúkur. Síðan var tekinn milliveggur milli herbergis inn af stofu og eldhúss, en með því stækkaði eldhúsið sem var áður mjög lítið. Kolaofn var tekinn úr stofunni og kolaeldavél úr eldhúsinu og sett í staðinn olíukynt Sóló eldavél. Frá henni var lögð miðstöð í húsið til að fá jafnari og betri hita. Þessi olíueldavél er ennþá í húsinu. Stefán Ólafsson byggði svo þó nokkuð stóra viðbót sunnan á húsið. Þar kom nýr gangur, snyrting og herbergi. Ágúst Ólafsson innréttaði svo einnig herbergi uppi á framlofti.
Nú er Gamli-Jörfi í eigu barna Ólafs og Helgu og afkomenda þeirra, sem nýta húsið sem orlofshús. Þau eru búin að einangra og klæða húsið utan og skipta um þak. Þeirra hugsjón er að halda Gamla-Jörfa í því horfi sem húsið var í þegar foreldrar þeirra fóru úr því, en þau bjuggu þar bæði til æviloka. Þetta gamla hús á sér langa sögu, sem núverandi eigendur kunna ekki nema brot af.
Ólafur og Helga voru lengi bændur samhliða öðrum störfum. Þau voru með kindur í fjárhúsi við Álfaborg og heyjuðu tún norðan við borgina sem nú er tjaldstæði. Þá voru þau með 1-2 mjólkandi kýr og hænur í sambyggðu fjósi við Gamla-Jörfa. Flestir íbúar í Bakkagerðisþorpi áttu kýr fyrr á árum, eina eða fleiri.
Íbúaskrá:
1897-1901 - Stefán Sigfússon, Pálína Þorsteinsdóttir.
1902-1904 - Egill Pétur Einarsson, Aðalbjörg Einarsdóttir.
1902-1904 - Þorsteinn Eiríksson, Rannveig Sigfúsdóttir.
1905-1913 - Óli Ólafsson, Elín Jónatansdóttir, Arnór Árnason.
1910-1912 - Þorsteinn M. Jónsson, Sigurjóna Jakobsdóttir.
1913-1922 - Guðmundur Björnsson, Guðrún Jónsdóttir.
1922-1925 - Þorbjörg Steinsdóttir.
1925-1946 - Hallgrímur Björnsson, Jóna Sigurðardóttir.
1947-1993 - Ólafur Ágústsson, Helga Sesselja Jóhannsdóttir.

