Borghildur álfkona

Álfaborg heitir klettur mikill, líkur herborg, sem stendur á sléttum mýrum fyrir miðjum botni Borgarfjarðar eystri í Múlasýslu. Mun fjörðurinn draga nafn af borg þessari.
    Álfaborg var hún kölluð af því að það var alþýðu trú að þar væri höfuÁlfaborgðból æðstu álfa og höfðingja huldufólks á Austurlandi, er var geysimargt. Því trúðu menn einnig að kirkja þessara borgarmanna og sveitunga þeirra væri í steini, mjög líkum húsi að lögun, fremst í þröngum dal sem liggur fram af Borgarfirði og Kækjudalur heitir. Er steinninn nefndur Kirkjusteinn og þóttust menn oft verða þess varir að huldufólk reið þangað.
    Jökulsá heitir næsti bær fyrir framan Álfaborgina, þeim megin Fjarðarár. Einu sinni bjó þar bóndi sem hélt vinnukonu þá sem Guðrún hét. Einhvern sunnudag um sumar fóru allir þaðan til kirkju að Desjarmýri nema vinnukonan; hún var ein heima. Húsmóðir hennar bað hana að skaka og hirða málnytu (afrakstur einna mjalta) þegar hún væri búin að smala og mjalta féð. Fór svo fólkið til kirkjunnar en stúlkan að smala. Mjólkaði hún svo ærnar og hleypti þeim ofan á eyrarnar fyrir neðan bæinn. Eftir það fór hún að matselda og þegar hún hafði lokið búverkum kom hún út á hlað og skyggndist þaðan um, bæði eftir ánum og öðru sem fyrir hana bar. Sér hún þá margt fólk ríða fram eftir götunum sem liggja neðan við túnið á Jökulsá. Þessir menn voru margir saman og riðu allir í litklæðum á fjörugum hestum og fallegum. Hún furðar sig á hve seint þetta fólk fari til kirkju. Allir fóru þeir framhjá bænum nema kona ein; hún reið upp túnið og heim á hlaðið. Þessi kona var göfug ásýndum og sælleg en hnigin á efra aldur. Hún heilsar stúlkunni og segir:
    "Gef mér skekna mjólk að drekka stúlka mín."
    Stúlkan hljóp inn, fyllti trékönnu með áfum og færði henni en konan tók við og teygaði. Þegar hún gaf upp spurði vinnukonan:
    " Hvað heitið þér?"
    En konan svaraði engu og fór aftur að drekka annan teyg. Spyr þá vinnukonan hana aftur sömu spurningar en konan svarar enn engu og fer að drekka. Þegar hún hafði drukkið úr könnunni og lagt lokið yfir sér stúlkan að hún fer inn í barm sinn og tekur þaðan fallegan léreftsklút, leggur ofan á könnulokið og fær henni um leið og hún þakkar henni fyrir. þá spyr stúlkan enn í þriðja sinn:
    "Hvað heitið þér?"
    "Borghildur heiti ég, forvitna mín" segir konan, sló hestinn svipuhögg og reið úr hlaðinu á eftir fólkinu og náði því.
    En vinnukonan horfði á eftir því og sá það seinast til þess að það reið inn hjá gráum steini utan til í svonefndum Kollutungum. Þar er leiðin inn til Kækjudals.
    Leið svo og beið þangað til fólkið kom heim um kvöldið frá kirkju. þá sagði vinnukonan frá því sem fyrir sig hafði borið um daginn og sýndi fólkinu klútinn sem henni var gefinn. Var hann svo fallegur að enginn þóttist slíkan séð hafa og er sagt hann hafi gengið milli höfðingskvenna á landinu. Reiðfólk það sem vinnukonan sá átti að hafa verið huldufólk úr Álfaborginni og ætlað til kirkju í Kirkjusteininn í Kækjudal.
    Úr þjóðsögum J.Á. Stytt og orðalagi örlítið breytt. Ó.Þ. Álfar og tröll.