Skólahald grunnskóladeildar

Gleði, árangur og virðing.

Þetta eru einkunnarorð skólans og eru leiðarljós okkar. 
Megi orð þessi lýsa því sem fram fer í skólanum hvort heldur sem er í námi nemenda, samskiptum á milli kennara og nemenda, milli nemendanna sjálfra og samstarfi heimila og skóla. 

Hefðbundinn dagur í skólanum hjá nemendum

7:45  Skólinn opnar
8:10 - 9:30 Kennsla hefst - tvær samliggjandi kennslustundir 
9:30 - 9:50  Frímínútur og nesti
9:50 - 11:10  Tvær samliggjandi kennslustundir
11:10 - 11:20  Frímínútur 
11:20 - 12:00  Kennslustund
12:00 - 12:30  Hádegisverður í Fjarðarborg þriðjudag-fimmtudag ( leikskólanemendur borða alla daga hádegisverð )
12:30 - 13:50  Tvær samliggjandi kennslustundir
13:50 - 14:00 Frímínútur
14:00 - 15:20 Tvær samliggjandi kennslustundir

Á mánudögum og föstudögum lýkur skóla kl. 12:00