Grænfánafréttir

 20. apríl 2020
Síðasta  gönguferð vetrarins var farin í Brúnavíkurskarð. Við fengum frábært veður og áttum ekki í miklum erfiðleikum með snjóalög. 

 

 

13. febrúar 2020. 

Í dag fengum við grænfánan afhentan í 5 sinn við hátíðlega athöfn. Guðrún Schmidt frá landgræðslunni kom til okkar og átti með okkur góða stund í skólanum. Nemendur voru búin að baka í tilefni dagsins. 

 

 

26. sept. 2019

Þá erum við loksins búin að endurnýja auglýsingatöfluna okkar. 

Hún er notuð í þeim tilgangi að upplýsa
og fræða aðra og minna okkur á það sem við ætlum okkur að gera ;) 

 

 

 

 

 

 

 

16. sept. Dagur náttúrunnar. 

Í dag völdum við okkur  þemu til að vinna eftir næstu tvö árin í Grænfánavinnunni. Þemun eru tvö, við ætlum áfram að vinna með "Hnattrænt jafnrétti" en svo völdum við okkur nýtt þema sem er "Lýðheilsa". Við komum líka með hugmyndir af verkefnum, það verður svo að koma í ljós hversu dugleg við verðum að framkvæma þau.  Við bættum við nýjum geisla með nýja þemanu á og síðan nýju skýi.

 

 

 

 

 

 

9. sept. 2019

Í dag létum við loks verða af því að kaupa eftirfarandi pakka hjá Unicef. Við keyptum 3 Ofurhetjupakka og 2 vatnshreinsitöflupakka. Samtals voru þetta 32.797 kr. sem er um það bil ágóðinn af tombólunni sem við héldum í desember í fyrra. 

Ofurhetjupakkinn

Þú þarft ekki skikkju til að bjarga lífi barna. Ofurhetjupakkinn slær verndarhjúpi yfir líf varnarlausra barna og hjálpar til við að vernda þau gegn lífshættulegum og skelfilegum sjúkdómum á borð við mislinga og mænusótt. Með þessum frábæra pakka útvegar þú bóluefni gegn mislingum og mænusótt, 40 skammta af hvoru. Þú gefur einnig 60 skammta af bóluefni gegn stífkrampa, 50 skammta af jarðhnetumauki sem gerir kraftaverk fyrir vannærð börn og kælibox fyrir bóluefnin.
Smitsjúkdómar, þið hafið hitt jafnoka ykkar!

Vatnshreinsitöflur - 10.000 stk.

Hvernig pakkar þú inn 50.000 lítrum af drykkjarhæfu vatni? Svarið er einfalt: Þú setur töflur í pakka og sendir þær!
Vatn er undirstaða alls lífs og þessar bráðsniðugu vatnshreinsitöflur – 10.000 talsins – geta á örskotsstundu galdrað fram drykkjarhæft vatn úr óhreinu. Mengað vatn er skaðvaldur og veikir bæði börn og dregur til dauða. Þessar töflur eru hins vegar settar út í óhreint vatn á svæðum þar sem neyðarástand ríkir og viti menn: Þá má fá sér að drekka. Með því að gefa vatnshreinsitöflur getur þú snert líf afar margra og gefið þeim þá dýrmætu gjöf sem heilnæmt vatn er.

26. ágúst. 2019

Í dag er grænfánadagurinn og af því tilefni fórum við í fyrstu gönguferðina okkar sem var berjaferð út í Stapavík.

Flott veður, skemmtilegur félagsskapur og fullt af krækiberjum. Hvað viljum við hafa það betra

Þegar ég verð búin að læra að setja inn albúm koma myndir en þangað til verður þessi að duga :)