Barnamenningarhátíð Austurlands - BRAS - í september

BRAS er menningarhátíð þar sem börnum og ungu fólki á Austurlandi er gefið tækifæri til að skapa og upplifa listir í víðu samhengi. Hátíðin var haldin í fyrsta skiptið 2018 og hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn í haust, en septembermánuður er tileinkaður menningu barna og ungmenna á Austurlandi.

Einkunnarorð hátíðarinnar eru Þora! Vera! Gera! enda er leiðarljós hátíðarinnar að hvetja börn og ungmenni á Austurlandi til að þora að vera þau sjálf og framkvæma á eigin forsendum. Markmiðið er að búa til vettvang þar sem öll börn og ungmenni á Austurlandi geta unnið saman á jafningjagrundvelli óháð móðurmáli, tungumálakunnáttu og búsetu. Unnið er þvert á þjóðerni, byggðakjarna og aldur.

Önnur markmið með BRAS eru meðal annars þessi:

• Að börn kynnist fjölbreyttum aðferðum listanna við skapandi vinnu.

• Að opna augu barna og ungmenna á Austurlandi fyrir mikilvægi samveru, samkenndar og samstöðu.

• Að gefa börnum tækifæri til að kynnast á nýjan hátt og skilja hvert annað út frá nýjum forsendum.

• Að auka virðingu og umburðarlyndi meðal barna og ungmenna.

• Að börn meti að verðleikum fjársjóðinn sem felst í aðgengi að ólíkum menningarheimum.

• Að nota listsköpunina til að byggja brýr á milli þjóðerna, aldurshópa og byggðakjarna.

Fjölbreytt dagskrá er í boði um allt Austurland og má nálgast opna dagskrá á bras.is en einnig verður boðið upp á ýmis verkefni sem fara fram innan skólastofnana.

Sjá dagskrá á heimasíðu hátíðarinnar.

Facebook-síða BRAS.