Skólaslit og útskrift Grunnskóla Borgarfjarðar

Grunnskóla Borgarfjarðar var slitið 26. maí síðastliðinn að viðstöddum nemendum, foreldrum og kennurum.

Grunnskóla Borgarfjarðar var slitið 26. maí síðastliðinn að viðstöddum nemendum, foreldrum og kennurum. Guðrún skólastýra rifjaði upp skólaárið í ræðu sinni, en hún lætur af störfum í haust og Helga Erla snýr aftur úr námsleyfi. Hafði Guðrún á orði að Helga kæmi til baka fílefld og uppfull af hugmyndum af nýjum og skemmtilegum íslenskuverkefnum fyrir nemendur. Bersýnilega mátti greina eftirvæntinguna í augum nemenda.

 

Umsjónarkennarar afhentu nemendum vitnisburðarblöð sín, og að því loknu tóku útskriftarnemendur við sínu plaggi ásamt rós í tilefni dagsins. Þetta voru þau Elísabet Rut Haraldsdóttir, Elsa Katrín Ólafsdóttir, Rannveig Ósk Jónsdóttir og Roman Jan Miszewski. Starfsfólk grunnskólans þakkar þeim samstarfið á liðnum árum með ósk um velgengni og bjarta framtíð.

 

Að venju voru viðurkenningar veittar fyrir framúrskarandi námsárangur. Þorbjörg Helga Andrésdóttir, 1. bekk, sýndi mestar framfarir í lestri á skólaárinu, og hlaut hún bók að launum. Jörgen Fífill Guðmundsson tók við útskurðarhníf fyrir góðan árangur í list-og verkgreinum. Rannveig Ósk Jónsdóttir veitti danskri orðabók frá danska menntamálaráðuneytinu viðtöku, og einnig bókaverðlaunum fyrir framúrskarandi námsárangur í vetur. Í anda Grænfánans fengu allir nemendur lindifuruhríslu til gróðursetningar.

 

Ánægjulegu og viðburðarríku skólaári er hér með lokið og ekkert annað í stöðunni en að fara að láta sér hlakka til haustsins. Hér má sjá myndir frá skólaslitunum.