Styrkur frá Forriturum Framtíðarinnar

Í desember 2017 hlaut Grunnskóli Borgarfjarðar styrk frá Forriturum Framtíðarinnar til að efla tæknikunnáttu í skólum.
Styrkurinn fólst í tveimur PC tölvum að verðmæti 130.000 kr. sem teknar voru í notkun skólaárið 2018-2019.

Tölvurnar komu sér mjög vel. Allir nemendur skólans nutu kennslu í forritun, yngsta stig þó aðeins færri tíma en mið-og elsta stig. Nemendur voru mjög áhugasamir og virkir í kennslustundum og fegnir að líta upp úr hefðbundnu námi. Kennari var Eyþór Stefánsson með B.sc. fjármálaverkfræði.

Forritun kennir skipulagða hugsun sem eflaust mun nýtast nemendum á öðru námi eða annars konar verkefnum í framtíðinni,  fái þeir áframhaldandi kennslu og þjálfun í forritun.

Grunnskólinn á Borgarfirði þakkar Forriturum framtíðarinnar fyrir úthlutunina og stefnir að því að hafa forritun á stundaskrá nemenda á næsta skólaári og vonandi sem lengst.