Styrkur frá Forriturum framtíðarinnar

Í desember 2017 hlaut Grunnskóli Borgarfjarðar styrk frá Forriturum framtíðarinnar til að efla tæknikunnáttu í skólum. Styrkurinn fólst í tveimur PC tölvum að verðmæti 130.000 kr. sem teknar voru í notkun skólaárið 2018-2019.


Tölvurnar komu sér mjög vel. Allir nemendur skólans nutu kennslu í forritun, yngsta stig þó aðeins færri tíma en mið-og elsta stig. Nemendur voru mjög áhugasamir og virkir í kennslustundum og fegnir að líta upp úr hefðbundnu námi. Kennari var Eyþór Stefánsson með B.sc. fjármálaverkfræði.


Forritun kennir skipulagða hugsun sem eflaust mun nýtast nemendum í öðru námi eða annars konar verkefnum í framtíðinni,  fái þeir áframhaldandi kennslu og þjálfun í forritun.
Grunnskólinn á Borgarfirði þakkar Forriturum framtíðarinnar fyrir úthlutunina og stefnir að því að hafa forritun á stundaskrá nemenda á næsta skólaári og vonandi sem lengst.
        
Sigþrúður Sigurðardóttir
skólastjóri