Auglýsing um sveitarstjórnarkosningar

 

Auglýsing

frá yfirkjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninga og kosninga til heimastjórna í sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar, sem fram fara þann 19. september 2020.

 

Kjörstaðir við sveitarstjórnar- og heimastjórnarkosningarnar þann 19. september nk. verða á kjördag opnir sem hér segir:

Borgarfjörður eystri:      Hreppstofan Borgarfirði.                Frá kl. 09:00 til kl. 17:00

Djúpivogur:                      Tryggvabúð Djúpavogi.                 Frá kl. 10:00 til kl. 18:00

Fljótsdalshérað:               Menntaskólinn á Egilsstöðum.     Frá kl. 09:00 til kl. 22:00

Seyðisfjörður:                  Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði.      Frá kl. 10:00 til kl. 22:00

 

Vegna sóttvarnarsjónarmiða eru kjósendur hvattir til þess að gæta fyllstu varúðar og virða fjarlægðarmörk á kjörstað, þar sem vænta má að af og til meðan á kjörfundi stendur geti margir verið staddir á kjörstað á sama tíma.    Á kjörstað á Egilsstöðum verður fyrirkomulag með breyttu sniði frá því sem verið hefur, þannig að kjördeild 1 og kjördeild 2 verða aðskildar á þann veg að kjördeild 1 verður á sama stað og hún hefur áður verið en kjördeild 2 færist í aðrar kennslustofur með sérinngangi.  Vegna þessa verður anddyrinu á kjörstað skipt í tvennt eftir kjördeildum og eru kjósendur beðnir að virða þessi mörk.

Vegna kosninga til heimastjórna eru kjósendur sérstaklega hvattir til þess að kynna sér vandaðar leiðbeiningar og upplýsingar um heimastjórnarkosningarnar á greinargóðum vef kosninganna; https://svausturland.is/  Sérstaklega skal ítrekað fyrir kjósendum að kosning til heimastjórnar er persónubundin.  Kjósanda ber að  rita á kjörseðilinn nafn og heimilisfang þess einstaklings úr sinni heimabyggð sem hann kýs.  Þess vegna er mjög brýnt að kjósendur hafi, áður en á kjörstað er komið kynnt sér hvert er heimilsfang hans.  Það getur valdið miklum töfum á atkvæðagreiðslu ef kjósendur geta ekki, þegar í kjörklefann er komið, tilgreint nákvæmlega og skv. kosningafyrirmælum þann einstakling sem hann kýs.   

Á kjördag, meðan atkvæðagreiðsla stendur yfir, mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur sitt á kjörstað í Menntaskólanum á Egilsstöðum.    Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 669-7982, tölvupóstfang:  kjorstjorn@me.is

 

Talning atkvæða fer fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum og hefst að kjörfundi loknum.

 

Yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs 11. september 2020.

 

Bjarni G. Björgvinsson, Ásdís Þórðardóttir, Björn Aðalsteinsson.