Auglýsing um utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosningar í nýju sveitarfélagi á Austurlandi og heimstjórnarkosninga hjá embætti sýslumannsins á Austurlandi

Auglýsing um utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosningar í nýju sveitarfélagi á Austurlandi og heimstjórnarkosninga hjá embætti sýslumannsins á Austurlandi

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í umdæmi sýslumannsins á Austurlandi vegna sveitarstjórnarkosningar og heimastjórnakosninga laugardaginn 18. apríl n.k. hófst 24. febrúar s.l. og fer fram á skrifstofum sýslumannsins á Austurlandi, sem hér segir:

  • Seyðisfjörður, Bjólfsgötu 7, frá kl.09:00 til kl.15:00.
  • Egilsstaðir, Lyngási 15, frá kl.09:00 til kl.12:00 og frá kl.13:00 til kl.15:00.
  • Eskifjörður, Strandgötu 52, frá kl.09:00 til kl.15:00, en föstudaga frá kl. 9:00 til kl.12:00.
  • Vopnafjörður, Lónabraut 2, frá kl. 10:00 til kl.13:00, en föstudaga frá kl. 9:00 til kl.12:00.

Á öðrum stöðum fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram frá sem hér segir:

  • Borgarfjörður: Hreppstofu, á opnunartíma og skv. samkomulagi við kjörstjóra.
  • Djúpivogur: Bakka 1, 765 Djúpavogi á opnunartíma og hefst skv. nánari ákvörðun sveitarfélagsins.
  • Fljótsdalshérað: Bókasafn Héraðsbúa, Laufskógum 1, frá 1. apríl, kl. 15:00 til kl. 18:00.

Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun skv. 2. mgr. 58. gr. l. nr. 24/2000. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en kl.16 fjórum dögum fyrir kjördag. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrastofnunum mun fara fram í samráði við forstöðumenn þeirra þegar henta þykir og verður ekki auglýst frekar, nema innan stofnananna.

Bent er á að um tvennar aðskildar kosningar er að ræða. Annars vegar listakosningar til sveitarstjórnar í hinu nýja sveitarfélagi og hins vegar óhutbundnar kosningar til heimastjórna í hverju og einu hinna sameinuðu sveitarfélaga. Í heimastjórnarkosningunni ritar kjósandi nafn og heimilisfang þess sem hann kýs og merkir sendiumslagið: „Heimastjórnarkosning“.

Kosningavefur dómsmálaráðuneytisins, www.kosning.is, hefur að geyma margvíslegar upplýsingar varðandi kosningar.

Sýslumaðurinn á Austurlandi
12. mars 2020
Lárus Bjarnason