Auglýst er eftir umsóknum í Vaxtarsamning Austurlands

Auglýst er eftir umsóknum í Vaxtarsamning Austurlands.


Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2013 og umsóknir skilist rafrænt til Vaxtarsamnings Austurlands.

Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á heimasíðu Vaxtarsamningsins www.austur.is og eru umsækjendur einnig hvattir til að kynna sér samninginn og viðauka hans á sömu heimasíðu, www.austur.is en úthlutun fer fram skv. ákvæðum samningsins og viðaukum.

Verkefnastjóri Vaxtarsamnings verður með viðveru á Breiðdalsvík og Reyðarfirði 26. apríl og á Seyðisfirði og Egilsstöðum 30. apríl. Tímapantanir í síma 470-3851 fyrir 24. apríl (Breiðdalsvík og Reyðarfjörður) og 29. apríl (Seyðisfjörður og Egilsstaðir).

Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Hrund Snorradóttir hjá Austurbrú,

netfang: vaxa@austurbru.is eða í síma 470-3851