Björn Thoroddsen í Fjarðarborg þriðjudaginn 16. sept. kl 20:00

Björn Thoroddsen
Björn Thoroddsen
Það er okkur sannur heiður að tilkynna um frábæra tónleika sem verða núna í september í Fjarðarborg með gítarsnillingnum Birni Thoroddsen. Björn Thoroddsen gítarleikari hefur sl. 30 ár verið einn af atkvæðamestu tónlistarmönnum
Íslands og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Hann var m.a. fyrstur íslenskra
gítarleikara að hlotnast sá heiður að vera útnefndur „Jazztónlistarmaður ársins“ árið 2003
og var valinn „Bæjarlistamaður Garðabæjar“ árið 2002. Björn sæmdur gullmerki FÍH fyrir
framlag sitt til jazztónlistar. Björn hefur ásamt því að vera í forsvari fyrir Guitar Islancio
leikið með fjölda þekktra erlendra tónlistarmanna.

Á síðustu misserum hefur Björn verið að koma sér inn í alþjóðlegu gítarhringiðuna með því
að leika með listamönnum á borð við Tommy Emmanuel, Kazumi Watanabe of.l ásamt því
að stjórna gítarhátíðum í Bandaríkjunum, Kanada og Noregi. Björn verður með tónleika í félagsheimilinu Fjarðarborg, Þriðjudagskvöldið 16. september. Á tónleikunum sýnir Björn á sér nýjar hliðar en hann kemur fram aleinn og óstuddur án aðstoðarmanna.

Á tónleikunum heyrist rokk, country, blús, popp og jafnvel þungarokk, enda ræður Bjössi við
alla tónlistarstíla. Tónleikagestir munu heyra lög úr smiðju Beatles, Rolling Stones, AC/DC,
Police, Who og fleiri. Tónleikarnir hefjast kl.20:00