Opinn blaðamannafundur Bræðslunnar 2013

Bræðslustjórinn Áskell Heiðar býður Borgfirðingum á opinn blaðamannafund og vöfflukaffi í Bræðslunni föstudaginn 10 maí kl. 12:00. Tilefnið er að miðasala á Bræðsluna í sumar er að hefjast og þá mun Heiðar kynna rannsókn verður gerð á samfélagslegum áhrifum Bræðslunnar í sumar. Boðið verður upp á borgfirsk tónlistaratriði á vegum grunnskólans

Borgfirðingar eru hvattir til að fjölmenna, hlusta á ljúfa tóna, þiggja vöfflur og kaffi og heyra af Bræðslunni í sumar og fyrirhugaðri rannsókn.