Enn fleiri myndir af skemmtunum

Helgi Eyjólfs, einn helsti tónlistarmaður Borgarfjarðar
Helgi Eyjólfs, einn helsti tónlistarmaður Borgarfjarðar
Vegna gríðarlega góðra viðbragða við þessum gömlu myndum sem hafa farið inn á síðuna að undanförnu hefur vefstjóri setið sveittur við að skanna ennnþá meira af myndum og það er nóg eftir af skemmtilegu efni.

Inn á myndasíðuna er komið nýtt albúm sem heitir meira af skemmtunum. Þar er að finna allskyns gamlar og skemmtilegar myndir. Það verður mikil vinna við að bera kennsl á alla á myndunum en það kemur vonandi að því einhvern tíman. Takk kærlega fyrir góð og jákvæð við þessum myndum sem og við síðunni í heild. Nýja vefumsjónarkerfið okkar er það einfalt og þægilegt að vinnan við síðuna er mun minni en áður og vonandi koma fleiri en ég til með að dæla inn efni á síðuna í framtíðinni, en það er stefnan að bjóða þeim sem vilja að fá aðgang og kennslu við að setja efni inn.

Myndasafnið má sjá hér


- Hafþór Snjólfur