Framfarafélag Borgarfjarðar - Gerumst stofnaðilar!

Hið nýstofnaða Framfarafélag Borgarfjarðar - til móts við nýjan dag, er komið með undirsíðu hér á vefnum sem má sjá hér. Hægt er að gerast stofnaðili að félaginu fram til 15. ágúst með því að senda nafn og kennitölu á framfarafelag.bgf@gmail.com, og er árgjaldið að félaginu 3000.- kr. sem rennur til starfsemi félagsins.  Við hvetjum alla sem láta sér málefni Borgarfjarðar varða, að skrá sig í félagið og leggja sitt af mörkum til eflingar samfélags og byggðar á Borgarfirði. 

Einnig er félagið komið með facebook síðu sem verður notuð til að miðla fréttum og öðru frá félaginu. Það er mikill hugur í fólki heima núna á Borgarfirði og góðir hlutir að gerast.