Framkvæmdir hjá Álfheimum

Við Álfheima í dag
Við Álfheima í dag
Nú þessa stundina er verið að steypa plötuna á þriðja húsinu á bökkunum hjá Ferðaþjónustunni Álfheimum og hafa steypubílarnir komið í hrönnum í dag í fjörðinn. Nýja húsið verður með einhverjum herbergjum og aðstöðu fyrir ferðalanga. Það er því ljóst að mikil aukning verður á gistirými í firðinum næsta sumar, því einnig er vinna hafin aftur við gistirými í gamla frystihúsinu en fréttastofan mun kíkja þar við í næstu viku sennilega.