Framlenging á umsóknarfresti

Kennarastaða laus hjá okkur í Grunnskólanum  

Við leitum að áhugasömum kennara sem getur tekið að sér sérkennslu í íslensku og stærðfræði á miðstigi, náttúrufræði, upplýsingatækni, jafnvel dönsku, tónlist eða íþróttir.

Menntun, reynsla og metnaður:

·       Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu eða kennaranemar í fjarnámi ganga fyrir öðrum umsækjendum

·       Kennslureynsla er kostur, einnig þeir sem hafa reynslu af útikennslu og samþættingu námsgreina

·       Samstarfsvilji með fullorðnum og börnum nauðsynlegur

·       Áhugi á að vinna að uppbyggingu skóla og skólasamfélags

·       Jákvætt hugarfar, ábyrgðarkennd, dugnaður og fagleg vinnubrögð ásamt áhuga á að samþætta námsgreinar er nokkuð sem umsækjendur þurfa að hafa metnað fyrir

·       Aðeins reglusamir einstaklingar koma til greina

 

Umsækjendur skulu sýna fram á hreint sakavottorð eða veita heimild fyrir upplýsingaöflun úr sakaskrá.

Ljósrit af leyfisbréfi eða prófgráðum eða staðfesting á námi skal fylgja umsókn.

 

Umsóknarfrestur er (framlengdur) til 28. júní  2014.

 

Áhugasamir hafi samband við

 

Svandísi Egilsdóttur skólastjóra í síma 472-9938 eða 7717217

Umsókn ásamt meðmælum sendist til:  Skólastjóri Svandís Egilsdóttir,  Grunnskóla Borgarfjarðar eystra, 720 Borgarfjörður, eða skolastjorigbe@ismennt.is

 

Við hlökkum til að heyra frá þér.