Fréttatilkynning - Listamenn á Bræðslunni 2014

Emiliana á leiðinni heim á Borgarfjörð
Emiliana á leiðinni heim á Borgarfjörð
Tónlistarhátiðin Bræðslan verður haldin hér á Borgarfirði eystra laugardaginn 26. júlí nk. Þetta er í tíunda skiptið sem Borgfirðingar slá upp tónlistarhátíð í gömlu síldarbræðslunni á Borgarfirði og því verður hátíðin í sumar sérlega vegleg.  Eftirfarandi tónlistarfólk mun koma fram í Bræðslunni þetta árið:
Drangar
Emilíana Torrini
Lára Rúnars
Mammút
Pollapönk
SúEllen


Sérstaklega ánægjulegt er að Emilíana Torrini snýr nú aftur til Borgarfjarðar, þar varði hún hluta af æsku sinni og hún kom einmitt fram á fyrstu Bræðslutónleikunum 2005 og einnig á Bræðslunni 2006.

Fleiri góðkunningjar Bræðslunnar snúa aftur, meðlimir Dranga þeir Jónas Sigurðsson, Mugison og Ómar Guðjónsson hafa allir komið fram áður á Bræðslunni, auk þess sem þeir unnu hluta af sinni fyrstu plötu á Borgarfirði. 

Lára Rúnarsdóttir og meðlimir hennar hljómsveitar sigldu einmitt með þeim Dröngum í kringum landið á Húna II á síðasta ári, m.a. með viðkomu á Borgarfirði, en þetta verður í fyrsta skiptið sem Lára kemur fram í Bræðslunni. 

Sömu sögu er að segja um ungliða þessa árs, Mammút sem hafa vakið verðskuldaða athygli á síðustu mánuðum.  Bræðslan hefur alla tíð haft það markmið að kynna ungt tónlistarfólk á hátíðinni og er þar skemmst að minnast Of Monsters and Men sem komu fram á hátíðinni 2010, þá að stíga sín fyrstu spor. 

Önnur hljómsveit sem mun koma fram í fyrsta skiptið á Borgarfirði er þó heldur eldri í hettunni, en það eru austfirðingarnir í SúEllen.  Þrátt fyrir að hafa spilað saman í hartnær þrjá áratugi hefur sveitin aldrei komið fram fullskipuð á Borgarfirði. 

Síðast en ekki síst skal svo nefna fulltrúa okkar Íslendinga í Evrovision þetta árið, Pollapönk.  Þeir munu koma með sinn góða boðskap um enga fordóma í Borgarfjörðinn.

Miðasala hefst á miði.is þann 6.maí kl 10:00.  Á síðasta ári seldust miðar í Bræðsluna upp á 60 klst. og því rétt að hafa hraðann á til að tryggja sér miða.

Fjöldi annarra tónleika mun verða í boði á Borgarfirði í aðdraganda Bræðslunnar og reyndar í allt sumar, nánar verður greint frá þeim þegar nær dregur.