Íbúafundur um sameiningartillögu

Næstkomandi fimmtudag, 10. október kl. 18 verður tillaga um sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar kynnt íbúum.


Íbúum gefst tækifæri til að koma spurningum, sjónarmiðum og ábendingum á framfæri. Hægt verður að koma spurningum á framfæri jafnt rafrænt og munnlega. Því er mikilvægt að þátttakendur hafi meðferðis snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu ef þau vilja nýta sér rafræna möguleikann. Fundunum verður streymt á Facebook-síðu sveitarfélagsins og geta íbúar fylgst með þar og sent inn spurningar.

Fundurinn fer fram í Fjarðarborg milli kl. 18:00 og 21:00.
Þátttakendum verður boðið upp á súpu og meðlæti.

Nánari upplýsingar á www.svausturland.is og á Facebook-síðu.

Viðburðurinn á Facebook.

Hlekkur á kynningarbækling.