Ingunn frá Desjarmýri gefur út bókin Bræðraborg

Ingunn Vigdís Sigmarsdóttir frá Desjarmýri, sendir á næstunni frá sér skáldsöguna Bræðraborg. Ingunn er fædd hérna  á Borgarfirði en hefur lengst af búið á Norðurlandi. Hún starfar sem grunnskólakennari á Akureyri og gefur bókina út sjálf.

Bræðraborg er elliheimili í litlu þorpi út á landi þar sem mannlífið blómstrar. „Bókin fjallar á gamansaman hátt um eldri borgara í þorpi og sveit og ekki síst vistmenn og starfsfólk á elliheimili,“ segir Ingunn.
Á elliheimilinu gengur á ýmsu og óvæntar uppákomur eiga sér stað. Bæði er sagt frá ástum og ævintýrum vistmanna og starfsmanna. „Mér finnst full þörf á bókum af þessu tagi þar sem morð og misþyrmingar eru fjarri en hversdagsævintýrin fá að njóta sín. Húmorinn er léttur en umfjöllunarefnið sammannlegt.

Ást og erótík, neyðarlegar uppákomur, kynlegir kvistir,togstreita milli ástar á æskustöðvunum og annars konar ástar, allt kemur þetta ásamt fleiru við sögu í bókinni.“

Bókin verður til sölu hérna á Borgarfirði í Kaupfélaginu og í bókaverslunum víða um land.