Kosið um heiti á nýtt sveitarfélag 27. júní

Samhliða forsetakosningum þann 27. júní greiða íbúar Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar atkvæði um sex tillögur að heiti á nýtt sveitarfélag.

Auglýst var eftir hugmyndum að heiti á sameinað sveitarfélag í upphafi ársins og bárust 112 tillögur með 62 hugmyndum að heitum á nýtt sveitarfélag. Sautján tillögur fóru til umsagnar hjá Örnefnanefnd. Greidd verða atkvæði um eftirfarandi tillögur.

  • Austurþing
  • Austurþinghá
  • Drekabyggð
  • Múlabyggð
  • Múlaþing
  • Múlaþinghá

Kosningaaldur í kosningu um heiti sveitarfélagsins miðast við 16 ára, en kjörskrá verður að öðru leyti í samræmi við lög um kosningar til sveitarstjórna. Kjósendum verður boðið upp á raðval með því að velja fyrsta og annan valkost.  Niðurstöður eru ekki bindandi og mun ný sveitarstjórn taka ákvörðun um nýtt heiti þegar hún kemur til starfa í október.