Kynningarmyndband fyrir nýju síðuna.

Nýja síðan virðist vera að falla vel í kramið hjá borgfirðingum og öðrum ef marka má gestabókina og umræður á facebook. Ég útbjó lítið kynningarmyndband sem fer yfir það helsta á síðunni og mæli ég með því fyrir stórnotendur síðunnar að horfa á það. Ég gleymdi að minnast á það í myndbandinu að það er hægt að gera facebook "like" á fréttir og setja þær þannig inn á vegg hjá sér á facebook. Einnig gleymdi líka að minnast á síðu sem sést á forsíðunni sem heitir "veður, færð og sjólag" en hún mun koma sér vel fyrir sjómenn og þá borgfirðinga sem spá mikið í veður og sjólag.