Grunnskóli Borgarfjarðar eystri auglýsir eftir kennurum

    Grunnskólinn á Borgarfirði eystra er heimilislegur samkennsluskóli sem rekinn er í samstarfi við leikskóla og frístund. Í skólanum næsta vetur verða 15 nemendur í 1.-10. bekk og 3 – 5 börn í leikskólanum. Frístund er rekin í leikskóla. Við erum  komin vel á veg með að aðlaga starfið að nýrri aðalnámsskrá og mun samþætting námsgreina og útikennsla fá aukið rými í skólastarfinu. Einkenni skólans sem við hlúum sérstaklega að eru sviðslistir, sjálfbærni og góð tengsl við grenndarsamfélagið, sögu þess og menningu. Við erum Grænfánaskóli og leggjum áherslu á umhverfisvitund og útikennslu ásamt rými fyrir skapandi starf. Á næsta skólári stefnum við að því að vinna sem heilsueflandi grunnskóli. Við gerum okkur grein fyrir að skólinn er lykilþáttur í íbúaþróun á Borgarfirði og þess vegna leitum við eftir skapandi og dugmiklu fólki sem vill hjálpa okkur að snúa vörn í sókn og vinna uppbyggilega að jákvæðu skólasamfélagi.  Okkur vantar kennara til að sinna ýmsum greinum og sérkennslu á elsta- og miðstigi. Meðal kennslugreina sem kæmu til greina eru utan sérkennslu í íslensku og stærðfræði er íslenska, sviðslistir, náttúrufræði, samfélagsgreinar, íþróttir og tungumál í öllum bekkjum,  jafnvel myndlist og heimilifræði, samtals 1,4 -1,5 stöðugildi. Menntun, reynsla og metnaður: ·       Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu eða kennaranemar í fjarnámi ganga fyrir öðrum umsækjendum ·       Kennslureynsla er kostur, einnig þeir sem hafa reynslu af útikennslu og samþættingu námsgreina ·       Samstarfsvilji með fullorðnum og börnum nauðsynlegur ·       Áhugi á að vinna að uppbyggingu skóla og skólasamfélags ·       Jákvætt hugarfar, ábyrgðarkennd, dugnaður og fagleg vinnubrögð ásamt áhuga á að samþætta námsgreinar er nokkuð sem umsækjendur þurfa að hafa metnað fyrir ·       Aðeins reglusamir einstaklingar koma til greina Umsækjendur skulu sýna fram á hreint sakavottorð eða veita heimild fyrir upplýsingaöflun úr sakaskrá. Ljósrit af leyfisbréfi eða prófgráðum eða staðfesting á námi skal fylgja umsókn.   Umsóknarfrestur er (framlengdur) til 14. júní 2014.   Áhugasamir hafi samband við Svandísi Egilsdóttur skólastjóra í síma 472-9938 eða 7717217 Umsókn ásamt meðmælum sendist til:  Skólastjóri Svandís Egilsdóttir,  Grunnskóla Borgarfjarðar eystra, 720 Borgarfjörður, eða skolastjorigbe@ismennt.is   Við hlökkum til að heyra frá þér.