Myndir frá árshátíðinni

Við höfum verið óskaplega upptekin við alls konar skemmtilegt að undanförnu. Árshátíðina héldum við með pompi og prakt laugardaginn 21.mars og þótti hún afar vel heppnuð. 

Leikrit yngri deildar á árshátíðinni, Urð og grjót, var heimasamið af yngri nemendum skólans og kennaranum þeirra henni Bryndísi Skúla. Textinn var unninn upp úr margvíslegum heimildum, rituðum og munnlegum, gömlum og nýjum. Meðal annars tóku nemendur viðtal við Jón á Sólbakka um ferð hans og Sigmars á Desjarmýri upp á hæsta tind Dyrfjalla. Við gerð handritsins og uppsetningu leikritsins tókust nemendur því á við nám í íslensku, samfélagsfræði og náttúrufræði og efldu með sér ýmsa mikilvæga hæfni. Gleðin og vinnusemin var líka svo sannarlega við völd í æfingarferlinu. Leikritið þeirra var lokapunktur í Litlu upplestrarkeppninni sem skólinn tekur nú þátt í í fyrsta sinn.

Uppfærsla eldri nemenda skólans á Hlauptu, týnstu er í tengslum við Þjóðleik sem er leiklistarhátíð ungs fólks. Skólinn hefur tekið þátt í Þjóðleik frá upphafi og við lítum það sem ómetanlegt tækifæri fyrir nemendur að takast á við ögrandi og skapandi verkefni.  Þeir sem taka þátt í Þjóðleik setja á svið leikrit sem flest eru skrifuð af íslenskum leikritahöfundum. Nemendur og umsjónarmenn skapa heim út frá handriti með ímyndunarafl, sköpunargáfu og útsjónasemi að vopni og það gerðu krakkarnir afar vel því þau hafa ráðið mestu um túlkun handritsins. Lokahátíð Þjóðleiks verður haldin í apríl og eflaust mun þá okkar leikrit hafa tekið einhverjum breytingum frá árshátíðardeginum.

Á árshátíð komu margir  gestir og gaman er að segja frá því að tónlistamennirnir sem dvöldu í listabúðum þeirra Já Sæll -manna voru afar hrifnir af báðum leikritunum og ekki síður kökuhlaðborði foreldrafélagsins. 

Nemendur skólans nutu góðs af komu tónlistarmannanna því við brölluðum saman ýmsilegt skemmtilegt með þeim, sungum og spiluðum á hljóðfæri. Jónas Sig. heimsótti okkur líka í söng og samskiptatíma á miðvikudagsmorguninn. 

 Hér má sjá myndir af undirbúningi árshátíðar. (pictures)