Myndir frá gömlum borgfirskum skemmtunum

Georg og Gummi á góðri stund
Georg og Gummi á góðri stund
Nú er búið að setja inn annað myndasafn með gömlum borgfirskum myndum sem búið er að skanna úr slidessafni Helga Arngrímssonar en þetta eru myndir frá borgfirskum skemmtunum á síðastliðinni öld. Það er planið að bæta reglulega við þessi söfn enda er til alveg óhemju mikið af gömlum myndum sem gaman er að setja hingað inn, en þær gagnast engum innilokaðar í slidessleðum um ókomin ár. Vefstjóri hefur fest kaup á slides og filmuskanna og er velkomið að hafa samband ef þið eigið í fórum ykkar einhverjar samfélagsmyndir sem passa hérna inn á vefinn.

Njótið vel.

Myndasafnið má sjá hérna