Opið fyrir umsóknir í Átak til atvinnusköpunar

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.Markmið verkefnis er að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta og að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum.

Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins og ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. tækjum og búnaði.

Smellið hér til að komast inn á umsóknina