Öskudagsskemmtun

Ætli þetta sé trúðurinn Barbara
Ætli þetta sé trúðurinn Barbara
Það var öskudagsskemmtun á vegum foreldrafélagsins í skólanum í gær. Eftir að hafa gengið á milli fyrirtækja í krapahríð og syngja fyrir viðstadda var gott að komast inn í skólann og dansa úr sér hrollinn. Það var góð mæting hjá krökkunum og skemmtu þau sér vel eins og meðfylgjandi myndir gefa til kynna.