Rúmlega 3500 á kjörskrá

Rúmlega 3.500 kjósendur eru á kjörskrá fyrir kosningar um sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarhrepps.

Þjóðskrá Íslands hefur gefið út kjörskrárstofn fyrir sameiningarkosningarnar og munu sveitarfélögin á næstu dögum afgreiða kjörskrár í samræmi við lög um kosningar til sveitarstjórna. Tíu dögum fyrir kosningar munu íbúar geta skoðað kjörskrárnar á skrifstofum sveitarfélaganna og gert athugasemdir ef einhverjar eru.

Einstaklingar geta kannað hvort þeir eru á kjörskrá og í hvaða kjördeild, með því að fletta upp í kjörskránni hjá Þjóðskrá. Það er gert með því að fara inn á vefsíðu Þjóðskrár hér.

  Karlar Konur Alls
Borgarfjarðarhreppur               56                38                94
Djúpavogshreppur               166                149                315
Seyðisfjarðarkaupstaður               264                245                509
Fljótsdalshérað               1.315                1.280                2.595
Alls               1.801                1.712                3.513

 

Flestir kjósendur eru á kjörskrá á Fljótsdalshéraði, en fæstir á Borgarfirði. Kosningaréttur er sá sami og í sveitarstjórnarkosningum. Hver íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á lögheimili í sveitarfélaginu getur kosið, sem og norrænir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag og aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt.

(Frétt af www.svausturland.is)