STARF Í BOÐI: Ertu forvitin/n? Blaðamaður óskast!

Útgáfufélag Austurlands auglýsir eftir blaðamanni í 100% starf frá 1. september. Starfið felur í sér vinnslu efnis fyrir bæði vikublaðið Austurgluggann og vefmiðilinn Austurfrétt.

Menntun og hæfni:

Mjög gott vald á íslensku ritmáli. Færni í ensku talmáli er kostur.
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
Þekking og áhugi á Austurlandi og austfirsku samfélagi.
Geta til að vinna hratt en nákvæmt og undir álagi.
Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að vinna sveigjanlegan vinnutíma og ferðast innan fjórðungs.
Góð samskiptahæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og greiningarhæfni.
Frumkvæði, drifkraftur og sköpunarkraftur.
Góð almenn tölvukunnátta. Þekking á vefumsjónarkerfum kostur.
Auga fyrir ljósmyndun.
Áhugi fyrir fjölbreyttri miðlun efnis.

Laun eru samkvæmt samningi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Staðsetning vinnuaðstöðu verður á Austurlandi en nánar ákveðin í samráði við starfsmann. 

Umsóknarfrestur er til 12. júlí. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni til að gegna starfinu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. 

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Gunnarsson, ritstjóri í síma 848-1981 eða á netfangið gunnar@austurfrett.is. Umsóknir sendist á gunnar@austurfrett.is