Sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi

Kosið verður til sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar þann 18. apríl næstkomandi.

 

Kjósa skal ellefu fulltrúa í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags, auk átta fulltrúa og átta til vara með beinni kosningu í fjórar heimastjórnir sveitarfélagsins.

  • Heimastjórn Borgarfjarðar
  • Heimastjórn Djúpavogs
  • Heimastjórn Fljótsdalshéraðs
  • Heimastjórn Seyðisfjarðar

 

Frestur til að skila inn framboðum vegna sveitarstjórnarkosninganna 18. apríl 2020 rennur út á hádegi laugardaginn 28. mars nk. Framboðum skal skila til yfirkjörstjórnar að Lyngási 12, Egilsstöðum. Við heimastjórnarkosningar er kosning ekki bundin við framboð en allir kjósendur á viðkomandi svæði eru í kjöri.

 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla getur hafist þann 22. febrúar nk. hjá sýslumönnum um land allt og í sendiráðum Íslands.