Til hamingju Viddi, Þórey og aðrir í Álfheimum

Arngrímur Viðar og Þórey við afhendingu frumkvöðulsins
Arngrímur Viðar og Þórey við afhendingu frumkvöðulsins
Þetta eru nú aldeilis skemmtilegar fréttir fyrir ferðaþjónustuna á Borgarfirði.

(tekið af mbl.is)

Aðstandendur ferðaþjónustunnar Álfheima á Borgarfirði eystra fengu á dögunum Frumkvöðulinn, viðurkenningu Ferðamálasamtaka Austurlands. Það voru Arngrímur Viðar Ásgeirsson og Þórey Sigurðardóttir sem tóku við verðlaununum en þau eiga og reka fyrirtækið í samvinnu við foreldra Arngríms. Frumkvöðullinn er veittur þeim sem sýna áræði og hugmyndaauðgi við uppbyggingu á þjónustu fyrir ferðamenn og stuðla með verkum sínum að aukinni fjölbreytni í atvinnugreininni á Austurlandi.