Tilkynning frá HSA vegna skimunar fyrir COVID-19

 

Frá Heilbrigðisstofnun Austurlands

 

Íslensk erfðagreining í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Austurlands býður íbúum Austurlands upp á skimun fyrir Covid-19 laugardaginn 4. apríl og sunnudaginn 5. apríl.

 

 

Sýnataka fer fram á eftirtöldum stöðum:

-          Egilsstaðir: Samfélagssmiðjan Miðvangi 31

-          Reyðarfjörður: Molinn Hafnargötu 2 (gengið inn frá bílastæði hægra megin við aðalinngang, gegnt Sesam brauðhúsi)

 

Bókun hefst kl. 15 í dag og fer fram með því að skrá sig hér:

 

bokun.rannsokn.is/q/reydisfj

bokun.rannsokn.is/q/egils

 

 

 

Að lokinni skimun verður svar birt á vefnum heilsuvera.is

Hringt verður í alla sem reynast vera jákvæðir.