Uppselt í forsölu á Bræðsluna 2013

Það tók ekki nema tæpa 2 daga að selja alla Bræðslumiðana sem settir voru í sölu þetta árið. Aldrei áður hafa miðarnir rokið svona hratt út, og eru þessar viðtökur alveg stórkostlegar. Enn á eftir að kynna hliðardagskránna í Fjarðarborg og í Álfacafé, en það sem við höfum heyrt af lofar góðu.

Sjáumst öll á Bræðslunni í sumar, allavegana þið sem eigið miða.