Umhverfisráð grunnskólans sendi inn beiðni til sveitastjórnar um daginn
þess efnis að hún kæmi upp móttöku fyrir notuð föt og skó í samstarfi við Rauðakross Íslands. Það er skemmst
frá því að segja að sveitarstjórnin brást vel við þessu, óskaði eftir söfnunarkassa frá Rauðakrossdeild
Héraðs og Borgarfjarðar sem nú þegar er kominn í sorpflokkunarstöðina á Heiðina. Þetta kallar maður hröð og góð
viðbrögð. Við hvetjum Borgfirðinga til að nýta sér þennan söfnunarkassa, losa sig við gömul og notuð föt á
umhverfisvænan hátt og styrkja um leið gott málefni.