Betri Borgarfjörður - umsóknarfrestur er til 17. apríl

Betri Borgarfjörður – Styrkúthlutun 2020

 

Auglýst er eftir umsóknum um styrki í tengslum við byggðaþróunarverkefnið Betri Borgarfjörður.

 

Um er að ræða þriðju úthlutun í verkefninu og að þessu sinni eru fimm milljónir króna í pottinum. Hægt er að sækja um stuðning við þróun hugmynda og verkefna sem falla að markmiðum verkefnisins. Verkefnisstjórn fagnar sérstaklega nýjum hugmyndum sem gætu leitt til atvinnusköpunar. 

 

Umsóknum um styrki skal skilað á tölvutæku formi til Öldu Marínar verkefnisstjóra á netfangið aldamarin@austurbru.is fyrir kl. 24.00 föstudaginn 17. apríl 2020. Til að fá nánari upplýsingar eða aðstoð er velkomið að hafa samband í tölvupósti eða hringja í s. 470-3860.

 

Umsóknareyðublað má finna hér.

Úthlutunarreglur má finna hér.