Fréttir

Störf í Grunnskóla Borgarfjarðar eystra

- einstakt tækifæri - Grunnskóli Borgarfjarðar eystra auglýsir eftir kennurum og leikskólakennara Grunnskólinn á Borgarfirði eystra er heimilislegur samkennsluskóli sem rekinn er í samstarfi við leikskóla og frístund. Í skólanum næsta vetur verða 15 nemendur í 1.-10. bekk og 3 – 5 börn í leikskólanum. Frístund er rekin í leikskóla. Við erum  komin vel á veg með að aðlaga starfið að nýrri aðalnámsskrá og mun samþætting námsgreina og útikennsla fá aukið rými í skólastarfinu. Einkenni skólans sem við hlúum sérstaklega að eru sviðslistir, sjálfbærni og góð tengsl við grenndarsamfélagið, sögu þess og menningu. Við erum Grænfánaskóli og leggjum áherslu á umhverfisvitund og útikennslu ásamt rými fyrir skapandi starf. Á næsta skólári stefnum við að því að vinna sem heilsueflandi grunnskóli. Við gerum okkur grein fyrir að skólinn er lykilþáttur í íbúaþróun á Borgarfirði og þess vegna leitum við eftir skapandi og dugmiklu fólki sem vill hjálpa okkur að snúa vörn í sókn og vinna uppbyggilega að jákvæðu skólasamfélagi.  Okkur vantar umsjónarkennara fyrir kraftmikla nemendur í 1.-4.bekk.  Þar fyrir utan auglýsum við eftir kennurum til að sinna ýmsum öðrum greinum og sérkennslu á elsta og yngsta stigi. Meðal kennslugreina er stærðfræði í elstu bekkjum,  sviðslistir, náttúrufræði,  samfélagsgreinar og jafnvel tungumál í öllum bekkjum, samtals 2,4 -2,5 stöðugildi. Auk þess er hér með auglýst laus  80 % staða leikskólakennara frá og með 1. ágúst. í leikskóladeildinni. Menntun, reynsla og metnaður: ·       Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu eða kennaranemar í fjarnámi ganga fyrir öðrum umsækjendum (Leikskólakennari þar sem það á við) ·       Kennslureynsla er kostur, einnig þeir sem hafa reynslu af útikennslu og samþættingu námsgreina ·       Samstarfsvilji með fullorðnum og börnum nauðsynlegur ·       Áhugi á að vinna að uppbyggingu skóla og skólasamfélags ·       Jákvætt hugarfar, ábyrgðarkennd, dugnaður og fagleg vinnubrögð ásamt áhuga á að samþætta námsgreinar er nokkuð sem umsækjendur þurfa að hafa metnað fyrir ·       Aðeins reglusamir einstaklingar koma til greina Umsækjendur skulu sýna fram á hreint sakavottorð eða veita heimild fyrir upplýsingaöflun úr sakaskrá. Ljósrit af leyfisbréfi eða prófgráðum eða staðfesting á námi skal fylgja umsókn.   Umsóknarfrestur er til 30. maí 2014.     Áhugasamir hafi samband við Svandísi Egilsdóttur skólastjóra í síma 472-9938 eða 7717217 Umsókn ásamt meðmælum sendist til:  Skólastjóri Svandís Egilsdóttir,  Grunnskóla Borgarfjarðar eystra, 720 Borgarfjörður,  eða skolastjorigbe@ismennt.is   Við hlökkum til að heyra frá þér.