Fréttir

Skólaslit og útskrift

Í gær voru skólaslit og útskrift hjá okkur

Betri Borgarfjörður

Í haust settu nemendur niður á blað hugmyndir af verkefnum sem þau vildu vinna í umhverfismenntartímum í vetur.

Opið hús

Föstudaginn 20. maí verður opið hús í skólanum klukkan 11:00 en þá ætla nemendur að kynna viðfangsefni þau sem þau hafa unnið að nú í valvikunni. Nemendur yngri deildar hafa unnið að verkefni með svokallaðri leitarnámsaðferð en þá byrja nemendur á að spyrja spurningar sem þau vilja finna svar við. Þar sem að þetta er valvika réðu nemendur alfarið viðfangsefnum sínum. Því næst koma nemendur með tilgátu að svari og ákveða með hvaða hætti þeir kynna sér málið og í lok vikunnar kynna allir niðurstöður sínar. Þessi aðferð hvetur börn til vísindalegrar nálgunar og er ætlað að auka ábyrgð þeirra á eigin námi ásamt því að efla nemendalýðræði við skólann.Nemendur eldri deildar hafa einnig unnið að sjálfvöldum verkefnum þessa vikuna í samræmi við áhuga sinn.  Kaffi á könnunni, allir velkomnir

Ræðukeppni

Í dag var efnt til ræðukeppni í söng og samskiptatíma. Nemendum var skipti í tvo hópa þar sem þeir mæltu með eða á móti Bræðslunni eftir atvikum. Þetta var skemmtilegt æfing þar sem rökfærsla, framsögn og tjáning var þjálfuð.  

Skriðnahellir opnaður á ný (myndband)

(frétt skrifuð af ruv.is) Fáir voru eins forugir um hvítasunnuhelgina og tveir menn sem réðust í að toga aur upp úr munna Skriðnahellis milli Borgarfjarðar eystri og Njarðvíkur. Vopnaðir skóflu og 30 lítra plastbrúsa tókst þeim að komast í hellinn sem óttast var að hefði mögulega eyðilagst fyrir 20 árum. Þar fundu þeir kerti og pilsnerdós.

Vor í Leikskólanum

Við á leikskólanum höfum aldeilis haft í mörgu að snúast 

Staða skólastjóra laus frá 1. ágúst

Staða skólastjóra við grunn- og leikskólann er laus til umsóknar, sjá nánar á þessum tengli hér  Áhugasamir hafi samband við Jón Þórðarson sveitastjóra 472-9999