Fréttir

Listaverk við smábátahöfnina?

Í framkvæmdunum út í höfn hefur verið komið fyrir stórri "tunnu" til þess að bæta skilyrði í höfninni og þarna hefur skapast flottur staður til þess að koma upp einhverju stórglæsilegu listaverki til þess að prýða höfnina og vera hennar helsta kennileiti.

Ný aðsetur Sveinunga

Þessa dagana er verið að útbúa nýja aðstöðu fyrir Björgunarsveitina Sveinunga í nýju skemmunni niðri á Heiði.

Bara til að ná okkur niður á jörðina

Þessi skemmtilega og vel skrifaða grein fannst á hinu stóra interneti.  Alltaf gaman af því að fá önnur sjónarmið. http://mengella.blogspot.com/2007/07/borgarfjrur-eystri.html

Ljósmyndasamkeppni Bræðslunnar og Borgarfjardareystri.is

Ákveðið hefur verið að efna til ljósmyndasamkeppni á vegum Bræðslunnar og fréttsíðunnar og eru verðlaunin ekki af verri endanum,

Framkvæmdagleði innan fjarðarins

Fréttastofan fór á stúfana í dag og smellti nokkrum myndum af því sem er verið að gera í firðinum, en hér er mikið af iðnaðarmönnum þessa dagana við allskyns verkefni.

Meira af gömlu myndum

Inn í myndasafnið er búið að setja mikið af nýjum "gömlum" myndum og í þetta skiptið eru myndir frá UMFB og leikfélaginu Vöku.

Borgarfjörður eystri, á Borgarfirði eystra

Um daginn hringdi maður í vefstjóra þessarar síðu og var frekar fúll og þá bara út af nafni hennar. Réttara væri að við hefðum lénið www.borgarfjordureystra.is.

Takk fyrir frábærar móttökur - 7000 heimsóknir frá opnun

Það er ekki hægt að segja annað en að nýja síðan virðist falla vel í kramið hjá lesendum ef marka má fjölda heimsókna, skilaboð og mail frá hinum og þessum varðandi síðuna, og er það einstaklega ánægjulegt fyrir okkur sem að henni standa.

Óli Gústa yngri frá Jörfa

Þó þessi síða sé að mestu ætluð fréttum frá Borgarfirði, þá finnst okkur gaman að heyra af brottfluttum og afkomendum þeirra sem eru að "meika það" fyrir utan rörahliðið.

Bingó

Síðast liðinn þriðjudag var spilað bingó í Fjarðarborg.