Fréttir

Lundadagurinn 2019

Hinn árlegi Lundadagur verður haldinn í Hafnarhólma á sumardaginn fyrsta 25. apríl klukkan 20.00.

Pistill frá formanni Sveinunga

Með þessum pistli langar mig að upplýsa ykkur um helstu störf björgunarsveitarinar Sveinunga og vona ég að þið hafið bæði gagn og gaman af.

Úrbótaganga

Kæru íbúar! Til að hita upp fyrir píslargöngur föstudagsins langa ætlum við að hittast á skírdag og taka rölt um þorpið okkar.

Umræðufundur með HSA

Íbúum Borgarfjarðar er því boðið til fundar við fulltrúa Heilbrigðisstofnunar Austurlands mánudaginn 29. apríl nk. kl. 17.00 í Fjarðarborg.

STÖRF ÁN STAÐSETNINGAR: Sérfræðingur á rannsóknasviði Ferðamálastofu

Ferðamálastofa óskar eftir að ráða töluglöggan, sjálfstæðan og drífandi einstakling í greiningu og miðlun gagna sem tengjast íslenskri ferðaþjónustu. Um er að ræða nýtt og spennandi starf á rannsóknasviði Ferðamálastofu sem hefur það hlutverk að halda utan um opinbera gagnasöfnun og rannsóknir á ferðamálum. Um fullt starf er að ræða. Staðan er auglýst án staðsetningar.

STARF Í BOÐI: Austurbrú auglýsir eftir starfsmanni í heimasíðugerð o.fl.

Austurbrú auglýsir eftir starfsmanni í 100% starf og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Umsækjendur þurfa að búa yfir frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun auk góðra samskiptahæfileika. Spennandi tækifæri fyrir áhugasama um þróun þjónustu við fyrirtæki og íbúa á Austurlandi.

STÖRF ÁN STAÐSETNINGAR: Lögfræðingur á sviði sveitarstjórnar- og byggðamála

Lögfræðingur á sviði sveitarstjórnar- og byggðamála - í boði er að nýta starfsaðstöðu í Fjarðarborg! Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar stöðu lögfræðings á sviði sveitarstjórnar- og byggðamála til afleysinga í eitt ár.

Landvarsla á Víknaslóðum sumarið 2019

Landvarðarverkefnið á Víknaslóðum sem hóf göngu sína í fyrra heldur áfram í sumar og til viðbótar verða tekin inn Stórurð, Stapavík og gönguleiðin um Gönguskörð inn í verkefnið.