Fréttir

Þorrablót 2015

Þorrablót Borgfirðinga verður haldið í Fjarðaborg laugardaginn 24. janúar. Húsið opnar kl. 19:30 og á sama tíma verður opnað inn í sal. Forsala á miðum verður í Fjarðaborg á laugardaginn frá kl. 12:00 til 14:00. Miðaverð er 8500 kr.

Lestaráskorun lauk í dag

Í dag lauk lestaráskorun í skólanum  en undanfarna fimmtán daga höfum við nemendur og kennarar lesið af kappi ýmsar bækur sem vekja áhuga okkar. Öll höfum við keppt við okkur sjálf að þessu sinni. Nemendur settu sér persónuleg markmið um að lesa  fleiri blaðsíður en þeir lásu í áskoruninni í fyrra.  

Tilboð á þorrablótsgistingu hjá gistiheimilinu Borg

Nú styttist í þorrablótið okkar og gistiheimilið Borg býður sérstakt þorrablótstilboð fyrir þá sem hafa hug á því að skemmta sér lengur og gista á Borgarfirði eftir blótið.

Vetrarfegurð

Veturinn birtist okkur í allri sinni fegurð 

Þorrablót Borgfirðinga 2015 - Skráning hafin

Þorrablót Borgfirðinga 2015 verður haldið í Fjarðarborg laugardaginn 24. janúar Húsið opnað kl: 19.30. Heimamenn og burtfluttir Borgfirðingar hafa forgang að miðum til 15. janúar, skráning í síma 4729933 Þóra og 4729920 Fjarðarborg á kvöldin. Mundum eftir að skrá okkur í tíma. Þorrablótsnefndin