Fréttir

Blak í sparkhöllinni alla mánudaga

UMFB hefur ákveðið að efna til opinna blakæfinga alla mánudaga fram á sumar í Sparkhöllinni og er öllum hjartanlega velkomið að mæta.

Lestu-hlauptu!!!!!!!!!

Mikið ofsalega eru nemendur hér duglegt fólk! Lestraráskoruninni lauk í gær, fimmtudaginn 30. janúar. Þá höfðu nemendurnir okkar 18 lesið 7508 blaðsíður á fimmtán dögum. 7508 blaðsíður og við erum á leið norður á Akureyri í maí. Við höfum þegar skorað á Brúarásskóla að lesa sem mest sér til ánægju - og þau tóku áskoruninni!

Samfélgasfundur / vinnustofa

Boðið er til ,,Samfélagsfundar” í Fjarðarborg fimmtudaginn 30. janúar frá 20:00 til 22:00.

Þorrablót 2014

Þorrinn blótaður.

Nýir kennarar til starfa

Á mánudaginn hófu  Kristján Geir og Arngrímur Viðar störf við skólann en þeir leysa Hoffu af í fæðingarorlofi. Þessi breyting er góð fyrir kynjahlutfallið á kennarastofunni og sérstaklega ánægjuleg fyrir Þráinn og okkur hin. Við bjóðum þá drengi velkomna til starfa.

Nýir kennarar til starfa

Á mánudaginn hófu Kristján Geir og Arngrímur Viðar störf við skólann en þeir ætla að leysa Hoffu af í fæðingarorlofi. Þessi skipti breyta kynjahlutföllum á kennarastofunni all verulega sem er ágæt tilbreyting fyrir Þráinn og okkur öll. Við bjóðum þá drengi velkomna til starfa.

Útlit fyrir bætt netsamband og sjónvarpsþjónustu á Borgarfirði

Gleðifréttir voru að berast okkur en það lítur allt út fyrir að Míla ætli að ráðast í úrbætur á netsambandi í firðinum á árinu og uppfæra búnaðinn hérna í þorpinu sem mun vonandi ná út í sveitina líka.

Lestraráskorun

Nemendur hvattir til að lesa.

Bréf til Borgfirðinga frá landslagsarkitektanema sem er á leiðinni í fjörðinn

Við vorum beðin um að koma þessu bréfi hingað inn frá Louise Cerveny sem er að vinna lokaverkefni sitt í landslagsarkitektúr í tengslum við Borgarfjörð. Vonandi taka allir henni vel og aðstoða við framvindu verksins.

Viðvera og starf hjúkrunarfræðings í skólanum á vorönn

'A vorönn kemur Susanne til okkar á miðvikudögum eins og vant er. Hún fræðir nemendur um eftirfarandi þætti 1.  bekkur             Líkami minn, flúor, handþvottur, hjálmnotkun, hamingja 2.  bekkur             Svefn, hamingja og tilfinningar 3.  bekkur             Svefn, hamingja og tilfinningar 4.  bekkur             Hamingja, sjálfsmynd, slysavarnir og tannvernd 7.   bekkur            Tannvernd, ónæmisaðgerð 8.  bekkur             Hugrekki, hollusta og hreyfing 10. bekkur            Kynning á heilsugæslunni og forvarnir ábyrgt kynlíf