11.08.2014
Kvennaferð er fyrirhuguð til Breiðuvíkur þann 16. ágúst, gist í eina nótt og gengið til Borgarfjarðar daginn eftir. Ef veður
verður gott verður gengið um Brúnavík frá Borgarfirði og þaðan til Breiðuvíkur. Daginn eftir verður gengið inn Breiðuvík
og yfir Víknaheiði til Borgarfjarðar.
07.08.2014
Næstkomandi Laugardag klukkan 14.00 mun UMFB leika einn af mikilvægustu leikjum sem liðið hefur leikið síðan það hóf þáttöku
í utandeildinni á Austurlandi. Liðið ferðast þá til Reyðarfjarðar til að mæta Val Reyðarfirði.
30.07.2014
Myndlistarkonan Edda Heiðrún Back er þessa dagana með myndlistarsýningu á Borgarfirði sem ber nafnið Gengilbeinur háloftanna. Sýningin er
í Vinaminni og þar er opið frá 14-17 fram til 4. ágúst
29.07.2014
Þá er Bræðslan liðin, en ennþá er nóg um að vera í firðinum og sumarið langt í frá að verða
búið.
17.07.2014
Það er mikið framundan í Fjarðarborg um helgina sem við viljum að allir Borgfirðinar viti af og geti frætt gesti sína um.
08.07.2014
Jónas er á leiðinni heim á Borgarfjörð og í tilefni þess verða stórtónleikar í fjarðarborg næsta föstudag.
08.07.2014
Föstudaginn 18. júlí næstkomandi kl. 20:00 er ljóðahátíð í Fjarðarborg á Borgarfirði eystra, fyrir tónleika
Creedence Travellin band. Þá kemur út ljóðabókin Gengin spor eftir Bjarna Steinsson
08.07.2014
Bræðslan fer fram á Borgarfirði laugardaginn 26. júlí nk. Þann sama dag, eftir hádegi, verður
útimarkaður við Fjarðarborg. Ýmislegt annað skemmtilegt verður á döfinni á sama tíma, fótboltaleikur, útitónleikar og
fleira sem kynnt verður síðar.
06.07.2014
Nú fyrir örfáum dögum opnuðu þau Kalli og Maggi inn í nýtt veitingarými í Álfacafé.
04.07.2014
Það er stór dagur í dag á Borgarfirði, en núna rétt áðan var fyrsta nýja íbúðin afhent eigendum, en ótal
mörg ár eru síðan það gerðist seinast.