01.10.2014
Dagana 11.-12.október verður haldið menntaþing á Borgarfirði eystra. Tilgangur þingsins er að skapa umræðu um jafnréttis- og
skólamál og kynna um leið áherslur sem samræmast stefnu Grunnskólans á Borgarfirði eystra.
26.09.2014
Í september er búið að landa 322 tonnum af fiski í Borgarfjarðarhöfn, af 18 bátum. Sjö af þessum bátum koma frá norðurlandi
og hafa gert út frá Borgarfirði í tæpar 3 vikur og svo villtist inn bátur frá Fáskrúðsfirði einn dag. Allir þessir
aðkomubátar veiða á handfæri nema einn sem skipti yfir í línutrekt.
02.09.2014
Það er okkur sannur heiður að tilkynna um frábæra tónleika sem verða núna í september í Fjarðarborg með gítarsnillingnum
Birni Thoroddsen.
29.08.2014
Nú í sumar voru teknar í notkun 3 íbúðir í gamla vinnslusalnum í frystihúsinu.
27.08.2014
Nemendum í eldri deild grunnskólans langar til að vita margt um íslenska hestinn. Til dæmis hvað hann getur orðið gamall, hver uppruni hans er, hver
meðalhæð hesta sé og hve meðganga er löng.
25.08.2014
Vikuna sem grunnskólabörnin voru á sundnámsskeiði á Egilsstöðum var rólegt hjá okkur á leikskólanum.
22.08.2014
Stórsnillingarnir okkar í UMFB gerðu sér lítið fyrir og sigruðu utandeildina þetta sumarið. Þeir tryggðu titilinn með því
að vinna Val á Reyðarfirði 0-7.
21.08.2014
Leikskólinn tók til starfa aftur eftir sumarfrí 7. ágúst.
21.08.2014
Þá fer að styttist í síðsumarstónleikana í Loðmundarfirði, en þeir verða haldnir laugardaginn 30. ágúst við
skála Ferðafélagsins kl 19:30. Í fyrra neyddumst við til þess að fella þá niður vegna veðurs, en þá áttu einmitt
þessir snillingar Jón Ólafsson og Eyjólfur Kristjánsson að koma fram. Þeir vildu ólmir reyna aftur og er það mikið gleðiefni
að tilkynna um það að þeir ætla að reyna aftur.
13.08.2014
Næstkomandi mánudag, þann 18. ágúst hefst skólastarf í grunnskólanum hjá okkur með sundnámskeiði á
Egilsstöðum og skólasetningu. Nemendur fara með áætlunarbílnum klukkan 08:00 en við, nemendur, kennarar og foreldrar hittumst öll og setjum
skólann þegar nemendur koma heim þennan dag um 15:30. Eins og sést á myndinni er ýmiss undirbúningur hafinn en hér eru krakkarnir í
leikskólanum og frístund að fegra stofuna sína. Leikskóli hófst 7. ágúst og frístundarkrakkarnir mættu til leiks í
þessari viku.