23.04.2013			
	
	Opið hús á Heiðinni 24. apríl kl. 16-18 þegar húsið verður tekið formlega í notkun.
 
	
		
		
			
					23.04.2013			
	
	Kynningarblað um nýjar aðalnámskrár og nýr upplýsingavefur
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út kynningarblað um nýju aðalnámskrárnar og er því dreift um allt land.
Blaðinu er ætlað að kynna nemendum, foreldrum og öðrum hagsmunaaðilum nýjar áherslur í menntun leikskólabarna, grunn- og
framhaldsskólanemenda. Þá hefur einnig verið opnaður nýr vefur namtilframtidar.is , þar sem veittar eru upplýsingar um námsskrárnar,
áherslur í menntamálum og fleira.
Ráðuneytið fer þess góðfúslega á leit við skóla að þeir birti upplýsingar um nýja vefinn á
heimasíðum sínum og greini jafnframt frá kynningarblaðinu Nám til framtíðar. Með bréfi þessu fylgir kynningarblaðið á
PDF-formi og mynd, sem hægt er að birta með slóðinni   www.namtilframtidar.is.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti 12. apríl 2013
Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri
 
	
		
		
		
			
					11.04.2013			
	
	Auglýst er eftir umsóknum í Vaxtarsamning Austurlands.
 
	
		
		
		
			
					10.04.2013			
	
	Nú fyrir nokkrum dögum fór að sjást til fyrstu lundana fyrir utan Bjarg og við Hólmann, en þann 8. stettist hann upp í Hólmann. Formleg
móttaka á vegum sveitarstjóra var í gær, 9. apríl kl 19:30.
 
	
		
		
		
			
					09.04.2013			
	
	Borgfirsk ungmenni fóru um síðustu helgi á Þjóðleik
 
	
		
		
		
			
					09.04.2013			
	
	Það er okkur mikil ánægja að tilkynna núna um væntanlega listamenn sem koma fram á árlegum hausttónleikum Ferðafélags
Fljótsdalshéraðs og Ferðamálahópsins í Loðmundarfirði. Í ár verða það félagarnir Eyjólfur
Kristjánsson og Jón Ólafsson sem ætla að heiðra okkur með nærveru sinni.
 
	
		
		
		
			
					04.04.2013			
	
	Það er alltaf spenna í loftinu þegar við fáum að heyra þau nöfn sem verða á Bræðslunni ár hvert, og dagskráin
í ár mun ekki valda neinum vonbrigðum leyfum við okkur að fullyrða.
 
	
		
		
		
			
					21.03.2013			
	
	Gissur Ó. Erlingsson loftskeytamaður, fyrrverandi umdæmisstjóri Pósts og síma og löggiltur skjalaþýðandi er 104
ára í dag, fæddur í Brúnavík við Borgarfirði eystra 21. mars 1909.
 
	
		
		
		
			
					19.03.2013			
	
	Þetta er kannski ekki hefðbundin Borgarfjarðarfrétt en áhugaverð þó fyrir suma. Eftir nákvæmlega 2 ár og einn dag mun sjást
fátíður stjarnfræðilegur atburður frá Borgarfirði og allri austurströnd Íslands en það er nær algjör almyrkvi
sólu.